Ađalvalmynd

Bloggrúnturinn

Auglýsing

Hjúkkurnar mínar

Litlu dúllurnar

Ný síđaSigurlína Stefánsdóttir

Þá er ég búin að gera síðu fyrir kútinn  ....eða allavega komin eitthvað af stað með það. Slóðin er barnanet.is/arongeir

Lífiđ gćti ekki veriđ betraSigurlína Stefánsdóttir

Þá er líkt og flestir vita herra fullkominn mættur á svæðið og jeminn hvað þetta er yndisleg tilfinning. Ég er reyndar að deyja úr þreytu núna og tími ekki að eyða tíma frá honum til að vera í tölvunni en hér koma allavega nokkrar myndir. Barnanets síðan verður svo tilbúin mjög fljótlega og við látum nánari upplýsingar hér inn von síðar. Við viljum svo þakka fyrir allar kveðjurnar, bæði hér á síðunni sem og í sms og símtölum.

.


Fleiri myndir hér
Kveðja
Sísí, Jónsi og Aron Geir

ekkert ađ gerast??Sigurlína Stefánsdóttir

Það er alveg merkilegt hversu oft ég fæ þessa spurningu þessa dagana ...og því miður er alltaf sama svarið, neibb, ekkert að gerast. Hann virðist hafa það svona rosalega gott inn í kúlunni að þegar loksins hann má mæta í heiminn virðist hann bara vera hættur við. Ég hins vegar lít orðið svona út komin 39 vikur + þrjá daga

.

.

og svo ein séð að aftan.....
.


Já svona er maður orðinn feitur ;)
En annars er bara allt ágætt að frétta, er bara að gera mest lítið þessa dagana þar sem maður er kominn í frí og allir aðrir auðvitað að vinna eða í skóla. Jónsi er svo búinn að skipuleggja rosa dagskrá á föstudaginn ef guttinn verður ekki mættur á svæðið og þá á að þjösnast með mig í einhverja rosa dagskrá með tilheyrandi hreyfingu til að reyna að koma öllu af stað á laugardaginn því afi hans á afmæli þá og væri ekki neitt lítið leiðinlegt að geta gefið svona flotta afmælisgjöf :) Þannig að akureyringar góðir þið megið eiga von á að sjá mig hoppandi á trampólíni eða hlaupandi eins og vitleysingur um götur bæjarins :)

En það er víst von á gestum í mat og best að fara að undirbúa það eitthvað....

halló!! ding dong!! :)Sigurlína Stefánsdóttir

hmmm fréttir segir fólkið, ég er víst ekki alveg að standa mig nógu vel í þeim geiranum. Enda er nú svo sem ekki neitt mikið að frétta og litli kútur virðist ekkert ætla að láta sjá sig. Ég væri nú eiginlega bara mest til í að hann myndi drífa í þessu helst í dag þar sem það myndi henta líka svona rosalega vel þar sem stelpurnar eru að byrja í verknámi á morgun og mánaðarfrí framundan hjá mér og væri ekki slæmt að geta nýtt það allt. Það er nú líka alveg kominn tími á hann, komin rúmar 38 vikur sem enginn bjóst nú við enda er líka farið að gæta smá óþolinmæði hjá mannskapnum. Ég er hins vegar bara furðu róleg, allavega svona miðað við aldur og fyrri störf, og hef það bara ágætt miðað við allt þ.e.a.s. ef maður telur ekki gömlu, góðu verkina í rifbeinunum með :) Núna er bara verið að vinna í að leggja lokahönd á allan undirbúning og höfum við skötuhjúin m.a. verið á foreldra námskeiði, ég reyndar verð nú að viðurkenna að ég er ekki að læra neitt rosalega mikið þar enda eru þetta meira að segja sömu glærurnar og hafa verið notaðar í fyrirlestrum í skólanum  ....en þetta er engu að síður ágætis upprifjun. Vagninn er svo mættur í hús, sem og bílstóllinn og þá held ég að nær allir stóru hlutirnir séu klárir  ....nema auðvitað kommóðan góða úr IKEA sem lætur ennþá bíða eftir sér mér til mikillar ánægju og yndisauka!!

Ótrúlegt en satt þá snýst líf mitt víst um fleira en þessa blessuðu óléttu þessa dagana. Búin að ná að mæta alveg ótrúlega vel í skólann þó eitthvað minna hafi nú borið á heimanáminu. Svo hefur maður nú reynt að nýta síðustu dagana sem "frjáls einstaklingur" og hefur hvert einasta kvöld undanfarnar vikur verið skipulagt í eitthvað og hefur verið endalaust af heimsóknum og matarboðum. Svo tók bekkurinn minn sig til, ótrúlegt en satt og hélt bekkjapartý og maður lét sig auðvitað ekki vanta þar en það er alltaf jafn spes að upplifa svona partý edrú. Ég skemmti mér nú samt sem áður alveg rosalega vel og var gaman að fylgjast með hvað hávaðinn í mannskapnum jókst mikið eftir því sem bjórunum/vodkanum eða hvað sem það var fjölgaði ;)

En jæja best að fara að gera sig reddý fyrir stórleik í fótboltanum, úrslitaleikur hjá KA-Þór í 2. flokki og ég vona bara innilega að hann fari ekki jafn illa og síðasti leikur sem ég fór á!!!!
Reyni svo að fara að nenna að henda inn bumbumyndum ;)

Drengur Sigurlínuson.....Sigurlína Stefánsdóttir

Nei ég held ekki! ekki neitt rosalega hljómfagurt ;) En við skötuhjúin vöknuðum upp við ansi vondan draum aðfaranótt þriðjudagsins þegar ég bókstaflega hélt að sá litli ætlaði nú heldur betur að koma í heiminn með tilheyrandi samdráttum og ólýsanlegum kvölum í bakinu. Ég reyndar harkaði þetta af mér, var nú ekki að nenna að fara upp á spítala til að hanga þar og á meðan þessu stóð var sko ansi margt sem flaug í gegnum kollinn og fattaði ég mér til mikillar skelfingar að einhvern veginn höfðum við gleymt því að láta skrá okkur í sambúð og ef krílið hefði drifið sig í heiminn þarna hefði hann verið skráður drengur Sigurlínuson sem náttúrulega gæti barasta ekki verið ljótara! Ég var líka í sjokki að ekkert skyldi vera tilbúið fyrir komu barnsins, herbergið ennþá nýtt sem hálfgerð geymsla, rúmið í geymslu og ekki búið að þvo neitt af fötunum.... Þannig að eftir að hafa pakkað öllu fyrir mig til að fara með upp á deild tók ég til við að taka saman öll barnafötin svo mamma gæti nú þvegið þau fyrir mig :)  ....maður var eins og ég veit ekki hvað, að staulast um alveg að drepast og reyna að gera allt klárt, en að lokum hætti þettta nú sem betur fer allt saman og guttinn er ennþá á sínum stað og verður vonandi eitthvað áfram. En það fyrsta sem var gert á þriðjudaginn var að skrá okkur í sambúð, rúmið var sótt og græjað og herbergið gert alveg rosalega fínt með þessu líka glæsilega bangsimon þema :) og þegar hann kemur loksins í heiminn verður hann skráður drengur Jónsson á alla pappíra! Ég verð svo eiginlega að taka það fram að á meðan öllu þessu stóð reyndi ég nú auðvitað að gefa Jónsa frið til að sofa en greyið svaf víst eitthvað illa því hann dreymdi svo miklar risaeðlumartraðir!!! heheh mér fannst það nú eiginlega bara fyndið :) og svo gerir fólk grín að köngulóa martröðunum mínum  ....þær eru allavega til!

En ég fór annars í skoðun í gær og þar kom allt saman bara vel út að venju og mér og ljósmóðurinni til mikillar ánægju var ég búin að ná að þyngjast alveg slatta og er núna búin að ná að þyngjast um rétt rúmlega 10 kg og þau verða nú vonandi fleiri :) Svo er ég bara búin að vera í skólanum, mæti svona eins og ég get og er það alveg þvílíki lúxusinn að vera farin að gera eitthvað annað en að hanga heima.

......Sigurlína Stefánsdóttir

Verð að segja að mér finnst alveg ótrúlegt að skrifa þetta en blessað sumarið er víst barasta alveg að verða búið en ég allavega miða það oftast við skólabyrjun og hann byrjar víst á mánudaginn. Ég veit nú ekki alveg hvað ég á að segja um þetta sumar ....ansi spes allavega! Fyrri partur þess var nú líkt og venjulegt sumar hjá mér undanfarin ár (svona fyrir utan það að maður djammaði auðvitað ekkert), þ.e.a.s endalaus vinna og stuð en eins og flestir vita hefur seinni hlutinn ekki alveg verið sá skemmtilegasti. Þetta reddaðist þó alveg ótrúlega og var ekki alveg jafn ömurlegt og ég hafði búist við og vandist maður því svona að lokum að vera ekki að gera neitt. En ég verð nú samt sem áður að segja að mikið rosalega hlakka ég til að byrja aftur í skólanum og sjá alla aftur :) Sjáum svo bara til hversu mikið maður þolir að mæta, tók smá forskot á sæluna og hékk upp á bókó og lærði fyrir þetta blessaða próf auk þess auðvitað að taka það og tók blessaður kúlubúinn og líkaminn minn ekki neitt rosalega vel í það og leyfði mér alveg að finna fyrir því  ....mamma gamla vildi bara helst að við myndum dríbba okkur upp á deild í gærkvöldi en ég var bara hin rólegasta og nennti ekki að gera neitt veður úr þessi. Enda hætti þetta nú allt saman að lokum ;) Ég reyndar gerði mér heldur betur góðan dag eftir prófið í gær þegar ég skellti mér í nudd ásamt Tinnu og guð minn góður hvað þetta var yndislegt! Hápunkturinn var tvímælalaus að fá að liggja á maganum en ég get ekki komið orðum yfir það hvað ég hef saknað þess að geta sofnað þannig ....sver það að ef ég hefði verið á aðeins stærri bíl en yaris þá hefði ég gert tilraun til að stela þessum bekk en ég sá bara því miður ekki fram á að koma honum í bílinn. En nuddið sjálft var auðvitað líka alveg unaðslegt og mér til mikillar ánægju leyfði sá litli mér alveg að njóta þess og var ekki með neitt vesen eða spörk ;)

En jæja best að fara að gera eitthvað af viti :)

loksins....Sigurlína Stefánsdóttir

Erum við að tala um að brjóstaþokan sé strax farin að hafa áhrif eða hvað   ....ég allavega mundi ómögulega notendanafnið og lykilorðið hingað inn og var ansi lengi að grufla það upp úr minninu  ....eða kannski er ástæðan sú að það er aðeins of langt síðan ég bloggaði ;) En vonum allavega að brjóstaþokan sé ekki neitt rosalega alvarleg því ég er víst að fara í eitt stykki próf á miðvikudaginn. Ég var auðvitað ekki neitt rosalega skynsöm og notaði undanfarinn mánuð í að læra heldur ákvað núna í vikunni að kíkja kannski eitthvað aðeins á þetta en haldiði ekki að blessuð tölvan mín hafi hafi ekki bara tekið upp á því að syngja sitt síðasta og neita að kveikja á sér og mín auðvitað ekki búin að prenta út neinar glósur eða gera neitt klárt og hvað þá redda mér bókinni því hana á ég auðvitað ekki :)   ....en þetta reddast nú allt saman og ég hef nú milljón sinnum sagt að ég kunni ekki að læra nema undir pressu.

Annars er ég nú smám saman farin að hreyfa mig meira og gera meira, þ.e.a.s ligg ekki í rúminu alveg 24/7 heldur tek smá tarnir og ligg svo alveg ónýt í rúminu ;) Ég skellti mér meðal annars í aðra suðurferð um daginn bara til þess að fara í IKEA og kaupa allt í barnaherbergið en nei nei þetta var sko verra en síðasta IKEA ferð þar sem hver einn og einasti hlutur sem ég ætlaði að kaupa var í pöntun og var það vægast sagt pirruð sísí sem strunsaði í gegnum IKEA í þetta skiptið og tautaði og tuðaði. Þar sem ég get nú hreyft mig ansi takmarkað voru settar reglur í ferðinni um að ég mætti ekki fara á Laugarveginn og eitthvað takmarkað í kringluna og Smáralindina og því varð ansi lítið úr þessari verslunarferð   ....nema ég náði þó að kaupa eitthvað aðeins af fötum á litla krílið. 

Ég tók mér svo líka pásu frá bælinu um versló, skelltum okkur allt Gunnfríðargengið + makar út að borða, þaðan var haldið í lónið í Mývatnssveit og svo stóð til hjá hinum að skella sér í útilegu en þar sem veðrið var nú ekki alveg upp á marga fiska hættu þau nú sem betur fer við það og komu bara til okkar á akureyrina þar sem aðstæður voru nú mun betri og komst maður að ansi fróðlegum staðreyndum um mannskapinn ;)

Lagði svo loksins í það að skella mér í klippingu og litun í síðustu viku og jeminn eini segi ég bara, þetta var algjör hryllingur og án efa skrautlegasta klipping sem ég hef farið í!!! Eftir fimm mínútur var ég alveg að drepast, alveg að kafna úr hita, svitnaði eins og 300 kg karlmaður og ætlaði bara að líða út af. En sú sem var að klippa mig var algjört yndi og sem betur fer var enginn annar í klippingu á sama tíma því allir gluggar og hurðir voru opnaðir fyrir mig og ég fékk að rölta um og haga mér eins og ég vildi og guð hvað ég var fegin þegar þessu öllu var lokið og þvílíki munurinn að sjá hárið :)
En thermostatið hjá mér er semsagt eitthvað furðulegt þessa dagana, er bara alltaf að deyja úr hita og kallar jónsi mig ísdrottninguna og finnst víst ansi kalt í íbúðinni oftast og sagði t.a.m. í kælinum í bónus um daginn að þetta væri bara eins og að koma heim :) Fjölskyldan kíkti líka í heimsókn um daginn og það var ansi skrautlegt því meðan ég sat í hlýrabol með bumbuna bera þar að auki var restin búin að klæða sig í flíspeysur, renna alveg upp í háls að krókna úr kulda    .....jebbs það er semsagt ægilega gaman að vera ég þessa dagana :)

Svo verður maður væntanlega að koma með smá fréttir að krílinu en á þeim bænum þá gengur allt bara rosalega vel, allar skoðanir hafa komið vel út og allt í orden þó blessuðu samdrættirnir séu auðvitað alltaf til staðar við minnstu hreyfingu en ég er nú bara eiginlega hætt að kippa mér upp við þá. Guttinn heldur áfram uppteknum hætti og ég er ekki frá því að hann sé búinn að bráka í mér rifbeinin miðað við verkina sem ég er alltaf með í þeim. En hann er búinn að skorða sig og alveg tilbúinn (svona rosalega stundvís eins og mamma sín) og dundar sér bara við það meðan hann bíður að dangla reglulega í mig og skemmtum við okkur ægilega vel við það ;) 

Ælta svo í lokin að skella hérna smá myndum frá því í síðustu viku og í gær. Eins og sést eru kisa og kúlubúi alveg einstaklega góðir pallar og finnst kisu alveg einstaklega gott að nota bumbuna sem kodda og að maður tali nú ekki þegar vínber eru geymd svona ofan á kúlunni.... :)


.
.

.

30+6Sigurlína Stefánsdóttir

Loksins koma inn myndir og hér eru alveg glænýjar myndir sem sýna 30 vikna + 6 daga bumbu   ....ekki nema rétt svo níu vikur eftir :)

.


.

.

.....Sigurlína Stefánsdóttir

Ég vil byrja á því að þakka fyrir allar kveðjurnar, símtölin og sms-in á afmælinu mínu, hafði bara því miður ekki undan að svara þessu öllu saman :) En dagurinn var alveg frábær, Jónsi bauð mér í mat í hádeginu og svo hófst undirbúningur fyrir veisluhöldin með dyggri aðstoð frá mömmu og Tinnu og svo var stanslaus gestagangur langt fram á kvöld og ég hefði ekki getað verið ánægðari með þetta allt saman :) Var reyndar ekki alveg sú duglegasta við að hvíla mig þennan daginn og fékk líka heldur betur að finna fyrir því daginn eftir og hafa því síðustu tveir dagar að mestu farið í rúmlegu   ....alltaf gaman að því. Skellti mér þó í skoðun hjá lækninum í gær og þar kom bara allt vel út og virðist litli guttinn vera farinn að róast aðeins. Ég verð þó að passa mig áfram á því að taka öllu rólega og var því endanlega ákveðið að ég færi ekki neitt meira að vinna þetta sumarið  ....en maður lifir það nú alveg af. Ákvað bara að skella mér í Harry Potter lestur til að stytta tímann aðeins. Ætla að lesa fimmtu og sjöttu bókina aftur til upprifjunar og svo skellir maður sér í þá síðustu og ættu nú vonandi einhverjir klukkutímar að fara í þetta. Svo er ekki nema rétt svo mánuður í að skólinn byrji aftur þannig að þetta verður örugglega enga stund að líða :)
Ég er svo heldur betur að komast að því að það er ekki nóg með að erfinginn hafi erft þolinmæðina frá mér heldur fótaóeirðina líka því þvílík og önnur eins læti hafa varla sést og fá rifbeinin mín sko heldur betur að finna fyrir þessu. Jónsi leist meira að segja ekkert á blikina í gær þegar lætin voru hvað mest og bjóst held ég bara við því að barnið myndi sparka sér út í gegnum bumbuna á mér. En þó að þetta sé oft á tíðum ekki alveg það þægilegasta í heimi er þetta samt alveg ótrúleg tilfinning og ekkert smá gaman að finna fyrir honum. Var alveg sérstaklega krúttlegt þegar ég greip óvart í hælinn á honum um daginn við eitt ansi kröftugt spark og jeminn hvað það var skrítið, ekkert smá lítill og flottur.
En jæja best að skella sér aftur upp í rúm
bæjó :)

ţolinmćđi.....Sigurlína Stefánsdóttir

Maður ætti kannski að fara að skella smá fréttum hérna inn enda nóg af þeim á þessum bænum. En það sem kannski helst ber í fréttum er að litli kúturinn virðist vera ansi líkur móður sinni hvað þolinmæði varðar og fundust 9 mánuðir alltof langur tími til að dúsa í bumbunni og ákvað því í síðustu viku að athuga bara með að skella sér í heiminn með tilheyrandi samdráttum og skemmtilegheitum. Þannig að eftir að hafa verið með mikla og reglulega samdrætti í dágóðan tíma var brunað upp á spítala eina nóttina og munaði minnstu að við yrðum send suður þar sem rúmlega 28 vikur er ekki alveg nógu löng meðganga en sem betur fer sluppum við nú við það.  Ég fékk alveg fullt af sprautum í rassinn, bæði til að stoppa samdrættina og líka stera til að flýta fyrir lungnaþroskanum hjá krílinu og þetta stoppaði allt saman að lokum. Ég var svo þeirrar ánægju aðnjótandi að dvelja næstu daga á spítalanum og til að toppa þetta alveg þá má ég ekki vinna lengur og má eiginlega gera mest lítið nema liggja í rúminu og í mesta lagi fara í sund og hanga í pottinum eins og ljósan orðaði það og þeir sem þekkja mig vita nú að þetta er mér frekar erfitt enda ekki beint vön að vera ekki að gera neitt! :s En þegar litla barnið manns er nú annars vegar þá harkar maður svona af sér og gerir nú allt til að því líði sem best :)

Og svo styttist heldur betur í merkisdag mikinn   ....ekki nema fimm dagar í afmælið mitt :) maður verður nú væntanlega eitthvað rólegur í partýhöldunum þetta árið og núna hef ég víst afsökun sem aldrei fyrr til að baka ekki ;) En það stoppar mann nú samt væntanlega ekki í að halda smá boð með aðstoð bakaría bæjarins.

En ég er alls ekki að nenna að blogga þessa stundina, ægilega andlaus eitthvað en þar sem það ætti nú að vera nægur tími til að blogga á næstunni er aldrei að vita nema maður verði duglegri við þetta og svo fara nú vonandi að koma myndir fljótlega :)
Síđa 1 af 8

Innskráningar kubbur

Myndir

Klukkan

Leit

Gagnasafn