Hæ hæ Sísí.
Vona að þú getir notið þess að vera í slökun. Ég var nú aðeins farin að hafa pínu áhyggjur af þér þar sem þú þurftir alltaf lengri og lengri tíma frá vinnu.
Var á næturvakt í nótt m/Sædísi og Unni. Þær spurðu báðar um þig svo ég skila hér með kveðju til þín frá þeim. :)
Hvaða dag varstu aftur sett?
Farðu vel með þig skvís....
Sísí fríkar út! :)
ţolinmćđi.....Sigurlína Stefánsdóttir
Maður ætti kannski að fara að skella smá fréttum hérna inn enda nóg af þeim á þessum bænum. En það sem kannski helst ber í fréttum er að litli kúturinn virðist vera ansi líkur móður sinni hvað þolinmæði varðar og fundust 9 mánuðir alltof langur tími til að dúsa í bumbunni og ákvað því í síðustu viku að athuga bara með að skella sér í heiminn með tilheyrandi samdráttum og skemmtilegheitum. Þannig að eftir að hafa verið með mikla og reglulega samdrætti í dágóðan tíma var brunað upp á spítala eina nóttina og munaði minnstu að við yrðum send suður þar sem rúmlega 28 vikur er ekki alveg nógu löng meðganga en sem betur fer sluppum við nú við það. Ég fékk alveg fullt af sprautum í rassinn, bæði til að stoppa samdrættina og líka stera til að flýta fyrir lungnaþroskanum hjá krílinu og þetta stoppaði allt saman að lokum. Ég var svo þeirrar ánægju aðnjótandi að dvelja næstu daga á spítalanum og til að toppa þetta alveg þá má ég ekki vinna lengur og má eiginlega gera mest lítið nema liggja í rúminu og í mesta lagi fara í sund og hanga í pottinum eins og ljósan orðaði það og þeir sem þekkja mig vita nú að þetta er mér frekar erfitt enda ekki beint vön að vera ekki að gera neitt! :s En þegar litla barnið manns er nú annars vegar þá harkar maður svona af sér og gerir nú allt til að því líði sem best :)Og svo styttist heldur betur í merkisdag mikinn ....ekki nema fimm dagar í afmælið mitt :) maður verður nú væntanlega eitthvað rólegur í partýhöldunum þetta árið og núna hef ég víst afsökun sem aldrei fyrr til að baka ekki ;) En það stoppar mann nú samt væntanlega ekki í að halda smá boð með aðstoð bakaría bæjarins.
En ég er alls ekki að nenna að blogga þessa stundina, ægilega andlaus eitthvað en þar sem það ætti nú að vera nægur tími til að blogga á næstunni er aldrei að vita nema maður verði duglegri við þetta og svo fara nú vonandi að koma myndir fljótlega :)
Athugasemdir
2
Stephanie skrifar:
19. júlí 2007 klukkan 18:19
3
Sif skrifar:
Hæ Sísí mín.
Anna Kristín sagði mér aðeins frá þessu í gær... ég vona að þér og litla kút líði vel og að allt gangi vel núna ;o) Ég ætla norður á eftir og fæ kannski að kíkja í heimsókn til þín um helgina til að sjá þig, bumbuna ykkar, Jónsa og íbúðina ;o) Verðum í bandi um helgina.
Kv. Sif
Anna Kristín sagði mér aðeins frá þessu í gær... ég vona að þér og litla kút líði vel og að allt gangi vel núna ;o) Ég ætla norður á eftir og fæ kannski að kíkja í heimsókn til þín um helgina til að sjá þig, bumbuna ykkar, Jónsa og íbúðina ;o) Verðum í bandi um helgina.
Kv. Sif
20. júlí 2007 klukkan 09:42
4
Andrea, Baddý og Karó skrifar:
Sísí okkar, þú kemur bara hérna austur í sveitaloftið og slökun. Við erum búnar að innrétta svo hrikalegt vídjóherbergi í villunni okkar að þar leiðist engum að liggja og taka því rólega, svo ekki sé minnst á magnið af stelpumyndum og þáttum sem er búið að dánlóda -það er alveg rúmlega hellingur! Farðu ofsalega vel með þig og litla kút.
Knús og kveðja frá Nesó
Knús og kveðja frá Nesó
20. júlí 2007 klukkan 14:19
5
sísí skrifar:
Takk fyrir kveðjurnar skvísur :) Ég er sett 30. sept þannig að þetta eru ekki nema rúmlega tveir mánuðir sem eru eftir ;)
23. júlí 2007 klukkan 00:36
6
Hildur Sólveig skrifar:
Ó Sísí mín, farðu vel með þig í letinu! Þetta verður ágætis tilbreyting! Koss og knús að vestan!
24. júlí 2007 klukkan 04:44
7
Sunna Brá skrifar:
Hæ, hæ....voðalega vill hann eitthvað flýta sér strákurinn!!! Vonandi að hann hafi látið sér segjast og sitji sem fastast næstu 2 mánuði.
Vildi annars bara óska þér til hamingju með afmælið :) Farðu rosalega vel með þig og þú lætur Jónsa stjana við þig 24/7!!!!
Kveðja,
Sunna Brá og bumbudaman ;)
Vildi annars bara óska þér til hamingju með afmælið :) Farðu rosalega vel með þig og þú lætur Jónsa stjana við þig 24/7!!!!
Kveðja,
Sunna Brá og bumbudaman ;)
24. júlí 2007 klukkan 12:46
8
Inga Dís skrifar:
Hæ sæta og til hamingju með daginn aftur ;) Ég komst ekki í kaffið í dag sökum knattspyrnuiðkunar, ´þú ættir að þekkja það hahaha ;) En allavega samt takk fyrir gott boð og vertu dugleg við að gera ekki neitt, ég veit að það er þér mjög erfitt en eins og þú segir að þegar um að ræða eitthvað jafn dýrmætt og lítil lifandi vera þá gerir maður klárlega allt ekki satt ;) Bið að heilsa í kotið ykkar Jónsa ;)
24. júlí 2007 klukkan 23:18
já, reyndu bara að njóta þess að hafa afsökun til að vera bara í rólegheitunum! verðum bara duglegar að hittast stelpurnar og hafa það notalegt :) ég vona svo bara að pilturinn verði ekki með meiri stæla, þó maður hlakki nú til að sjá hann! ;)