Sísí fríkar út! :)
loksins....Sigurlína Stefánsdóttir
Erum við að tala um að brjóstaþokan sé strax farin að hafa áhrif eða hvað ....ég allavega mundi ómögulega notendanafnið og lykilorðið hingað inn og var ansi lengi að grufla það upp úr minninu ....eða kannski er ástæðan sú að það er aðeins of langt síðan ég bloggaði ;) En vonum allavega að brjóstaþokan sé ekki neitt rosalega alvarleg því ég er víst að fara í eitt stykki próf á miðvikudaginn. Ég var auðvitað ekki neitt rosalega skynsöm og notaði undanfarinn mánuð í að læra heldur ákvað núna í vikunni að kíkja kannski eitthvað aðeins á þetta en haldiði ekki að blessuð tölvan mín hafi hafi ekki bara tekið upp á því að syngja sitt síðasta og neita að kveikja á sér og mín auðvitað ekki búin að prenta út neinar glósur eða gera neitt klárt og hvað þá redda mér bókinni því hana á ég auðvitað ekki :) ....en þetta reddast nú allt saman og ég hef nú milljón sinnum sagt að ég kunni ekki að læra nema undir pressu.Annars er ég nú smám saman farin að hreyfa mig meira og gera meira, þ.e.a.s ligg ekki í rúminu alveg 24/7 heldur tek smá tarnir og ligg svo alveg ónýt í rúminu ;) Ég skellti mér meðal annars í aðra suðurferð um daginn bara til þess að fara í IKEA og kaupa allt í barnaherbergið en nei nei þetta var sko verra en síðasta IKEA ferð þar sem hver einn og einasti hlutur sem ég ætlaði að kaupa var í pöntun og var það vægast sagt pirruð sísí sem strunsaði í gegnum IKEA í þetta skiptið og tautaði og tuðaði. Þar sem ég get nú hreyft mig ansi takmarkað voru settar reglur í ferðinni um að ég mætti ekki fara á Laugarveginn og eitthvað takmarkað í kringluna og Smáralindina og því varð ansi lítið úr þessari verslunarferð ....nema ég náði þó að kaupa eitthvað aðeins af fötum á litla krílið.
Ég tók mér svo líka pásu frá bælinu um versló, skelltum okkur allt Gunnfríðargengið + makar út að borða, þaðan var haldið í lónið í Mývatnssveit og svo stóð til hjá hinum að skella sér í útilegu en þar sem veðrið var nú ekki alveg upp á marga fiska hættu þau nú sem betur fer við það og komu bara til okkar á akureyrina þar sem aðstæður voru nú mun betri og komst maður að ansi fróðlegum staðreyndum um mannskapinn ;)
Lagði svo loksins í það að skella mér í klippingu og litun í síðustu viku og jeminn eini segi ég bara, þetta var algjör hryllingur og án efa skrautlegasta klipping sem ég hef farið í!!! Eftir fimm mínútur var ég alveg að drepast, alveg að kafna úr hita, svitnaði eins og 300 kg karlmaður og ætlaði bara að líða út af. En sú sem var að klippa mig var algjört yndi og sem betur fer var enginn annar í klippingu á sama tíma því allir gluggar og hurðir voru opnaðir fyrir mig og ég fékk að rölta um og haga mér eins og ég vildi og guð hvað ég var fegin þegar þessu öllu var lokið og þvílíki munurinn að sjá hárið :)
En thermostatið hjá mér er semsagt eitthvað furðulegt þessa dagana, er bara alltaf að deyja úr hita og kallar jónsi mig ísdrottninguna og finnst víst ansi kalt í íbúðinni oftast og sagði t.a.m. í kælinum í bónus um daginn að þetta væri bara eins og að koma heim :) Fjölskyldan kíkti líka í heimsókn um daginn og það var ansi skrautlegt því meðan ég sat í hlýrabol með bumbuna bera þar að auki var restin búin að klæða sig í flíspeysur, renna alveg upp í háls að krókna úr kulda .....jebbs það er semsagt ægilega gaman að vera ég þessa dagana :)
Svo verður maður væntanlega að koma með smá fréttir að krílinu en á þeim bænum þá gengur allt bara rosalega vel, allar skoðanir hafa komið vel út og allt í orden þó blessuðu samdrættirnir séu auðvitað alltaf til staðar við minnstu hreyfingu en ég er nú bara eiginlega hætt að kippa mér upp við þá. Guttinn heldur áfram uppteknum hætti og ég er ekki frá því að hann sé búinn að bráka í mér rifbeinin miðað við verkina sem ég er alltaf með í þeim. En hann er búinn að skorða sig og alveg tilbúinn (svona rosalega stundvís eins og mamma sín) og dundar sér bara við það meðan hann bíður að dangla reglulega í mig og skemmtum við okkur ægilega vel við það ;)
Ælta svo í lokin að skella hérna smá myndum frá því í síðustu viku og í gær. Eins og sést eru kisa og kúlubúi alveg einstaklega góðir pallar og finnst kisu alveg einstaklega gott að nota bumbuna sem kodda og að maður tali nú ekki þegar vínber eru geymd svona ofan á kúlunni.... :)



Athugasemdir
1
Tinna skrifar:
þetta eru náttúrulega bara snilldarmyndir af kettinum :)
19. ágúst 2007 klukkan 14:19
2
ester skrifar:
hahaha...þetta eru náttúrulega baaara æðislegar myndir! :) og kominn þessi líka myndarkúla, hún stækkar bara með hverjum deginum sem líður! ;p
20. ágúst 2007 klukkan 09:54
3
mamma skrifar:
mundu bara eftir að taka smá pásur frá lestrinum og hvíla þig. Svo þú verðir nú ekki á fæðingardeildinni, meðan hinar taka prófið:)
21. ágúst 2007 klukkan 20:25
4
Karen skrifar:
Þetta gengur vonandi vel í dag, hef enga trú á öðru =) annars er ég farin að hlakka virkilega til að sjá litla gæja, "bara´" rúmur mánuður eftir :D
22. ágúst 2007 klukkan 10:00