Sísí fríkar út! :)
......Sigurlína Stefánsdóttir
Verð að segja að mér finnst alveg ótrúlegt að skrifa þetta en blessað sumarið er víst barasta alveg að verða búið en ég allavega miða það oftast við skólabyrjun og hann byrjar víst á mánudaginn. Ég veit nú ekki alveg hvað ég á að segja um þetta sumar ....ansi spes allavega! Fyrri partur þess var nú líkt og venjulegt sumar hjá mér undanfarin ár (svona fyrir utan það að maður djammaði auðvitað ekkert), þ.e.a.s endalaus vinna og stuð en eins og flestir vita hefur seinni hlutinn ekki alveg verið sá skemmtilegasti. Þetta reddaðist þó alveg ótrúlega og var ekki alveg jafn ömurlegt og ég hafði búist við og vandist maður því svona að lokum að vera ekki að gera neitt. En ég verð nú samt sem áður að segja að mikið rosalega hlakka ég til að byrja aftur í skólanum og sjá alla aftur :) Sjáum svo bara til hversu mikið maður þolir að mæta, tók smá forskot á sæluna og hékk upp á bókó og lærði fyrir þetta blessaða próf auk þess auðvitað að taka það og tók blessaður kúlubúinn og líkaminn minn ekki neitt rosalega vel í það og leyfði mér alveg að finna fyrir því ....mamma gamla vildi bara helst að við myndum dríbba okkur upp á deild í gærkvöldi en ég var bara hin rólegasta og nennti ekki að gera neitt veður úr þessi. Enda hætti þetta nú allt saman að lokum ;) Ég reyndar gerði mér heldur betur góðan dag eftir prófið í gær þegar ég skellti mér í nudd ásamt Tinnu og guð minn góður hvað þetta var yndislegt! Hápunkturinn var tvímælalaus að fá að liggja á maganum en ég get ekki komið orðum yfir það hvað ég hef saknað þess að geta sofnað þannig ....sver það að ef ég hefði verið á aðeins stærri bíl en yaris þá hefði ég gert tilraun til að stela þessum bekk en ég sá bara því miður ekki fram á að koma honum í bílinn. En nuddið sjálft var auðvitað líka alveg unaðslegt og mér til mikillar ánægju leyfði sá litli mér alveg að njóta þess og var ekki með neitt vesen eða spörk ;)En jæja best að fara að gera eitthvað af viti :)
Athugasemdir
2
Karen skrifar:
Vona að þú náir að halda lilla gæ inni svolítið lengur, annars verður gaman að sjá hvort að spádómur Tinnu rætist ;)
30. ágúst 2007 klukkan 10:34
annars sé ég þig á morgun:)