Sísí fríkar út! :)
Norđurferđin miklaSigurlína Stefánsdóttir
Enn einu sinni byrja ég bloggið mitt á að tilkynna að ég sé mætt suður, finnst ég varla gera nokkuð annað en að ferðast á milli Akureyrar og Reykjavíkur þessa dagana ....en það er nú samt vel þess virði! Það var auðvitað alveg frábært á Akureyri en svona í stuttu máli þá fól ferðin í sér eftirfarandi....
Þetta er ágætt í bili |
og ţađ var bara punkterađ!! :)Sigurlína Stefánsdóttir
Sæl og blessuð, þá er maður mættur norður eftir ansi viðburðaríka ferð svo ekki sé meira sagt! Ég og Baddý skvís komumst loksins út úr Reykjavíkinni en þar sem við vorum á ferðinni um fimm leitið var umferðin auðvitað alveg gífurlega mikil og var ekki alveg að henta mér þar sem ég vildi nú komast norður sem allra fyrst. En auðvitað var almættið ekki alveg sammála mér með það þar sem þegar við vorum að keyra Kjalarnesið kemur allt í einu svona smá hvellur, svo heyrðist svona laumuprumphljóð og að lokum einhver skrítin hljóð ....mér leist auðvitað ekkert að blikuna leit á Baddý og bara guð það er örugglega sprungið og mikið rétt þegar Baddý leit út var auðvitað sprungið! og hvað gera bændur, eða réttara sagt hjúkkunemar sem kunna ekki neitt á bíla, þá??? Já auðvitað ekkert nema gjörsamlega springa úr hlátri! Litum svo hvor á aðra, ræddum málin aðeins og komumst þá að því að hvorug okkar hafði nokkru sinni skipt um dekk eða hafði nokkra reynslu af svona málum! En við tókum okkur auðvitað til, byrjuðum á því að tæma skottið þar sem við vissum nú að varadekkið væri geymt þar ....en svo tók ansi löng leit að varadekkinu við en það fannst þó nú sem betur fer að lokum! Baddý sýndi svo alveg snilldartakta við að tékka upp bílinn (eða segir maður það ekki annars??En svo bíður manns alveg stórskemmtileg helgi hérna á Akureyri, KA-Þór í bikarnum núna bara rétt á eftir, kannski eitthvað skrall þar á eftir með Andreu skvísu, útskrift, bekkjapartý og grillpartý og grillpartý annað kvöld og svo auðvitað bara sól og blíða eins og alltaf á Akureyrinni minni!
En jæja verð víst að fara að dríbba mig
Bæjó
ţegar mađur hefur ekkert betra ađ gera....Sigurlína Stefánsdóttir
|
Ţađ sem manni dettur í hugSigurlína Stefánsdóttir
| Vúhú þá er þessi næturvaktartörn búin og eins dags sumarfrí tekið við, komst að því á þessum þremur nóttum að mér finnst bara ágætt að vinna á nóttunni, ekkert mál að vaka og svona ....eini gallinn er bara að ég get barasta ekki sofið á daginn og þar sem ég er ansi háð svefni er ca. fimm tíma svefn alls ekki nægilegur fyrir mig! Ég mundi svo eftir því að skrifaði einhvern tímann blogg um svona nokkuð af því fáranlegasta sem mér hefur dottið í hug að gera og datt því í hug að finna það og setja hluta af því hérna auk þess að bæta kannski einni eða tveimur við svo þeir sem voru ekki byrjaðir að lesa bloggið mitt þá sjái hvað ég get verið rosalega klikkuð!
Sjáumst |
Smá ţreytubloggSigurlína Stefánsdóttir
Góðan og blessaðan daginn! Klukkan er rétt rúmlega sex og málið er ekki að ég sé svona árrisul heldur er ég á næturvakt og það er ekki laust við að þreytan sé aðeins farin að segja til sín, mæli ekki með því að taka kvöldvakt, morgunvakt og svo næturvakt svona í röð en þetta hefur valdið því að ég er búin að ná ca. fimm tíma svefni undanfarna tvo sólarhringa
Svo eru það bara næturvaktir alla helgina þannig að það verður víst eitthvað lítið um djamm og félagslíf ....en maður lifir það nú af! Eina leiðinlega við þetta er að ég missi af útskriftinni hjá HA og kallinum á morgun en til að bæta það upp er búið að skipuleggja norðurferð um næstu helgi! Já maður endist ekki lengi hérna í borginni!
Búin að ná að breyta vöktunum mínum þannig að ég næ meira að segja þriggja daga helgarfríi og ekki er það nú slæmt! Þetta þýðir líka að ég næ KA-Þór í bikarnum þar sem mínir menn eiga nú harma að hefna og svo næ ég líka útskriftarveislunni hjá Pálu Dröfn skvís! Stemmingin verður líka örugglega ekki jafn mikil neins staðar á landinu eins og á Akureyri á 17. júní þar sem maður getur þrammað um með svarta kollinn sinn og fylgst með nýstúdentunum marsera, eða spassera eins og ein gáfuð vinkona mín orðaði það alltaf, um bæinn á miðnætti!
En annars er bara allt ljómandi gott að frétta af mér, búin að vera að vinna á fullu en annars er bara eintóm hamingja ríkjandi hjá öllum íbúum Mávahlíðar, svona utan við það að hamsturinn hans Bigga, hún Ásta Sóllilja lést óvænt í vikunni og erí stað hennar er búið að fjölga heimilismeðlimum um tvo, en tvær mýs bættust í hópinn í dag ....þannig að ég býst nú ekkert við því að eiga von á pabba kallinum í heimsókn á næstunni þar sem hann og mýs eru nú ekki beint bestu pallar! Svo hefur á undanförnum dögum hin ástæðan þess að ég ákvað að setjast ekki að í Reykjavíkinni verið að rifjast upp fyrir mér, jebbs það er blessað veðurfarið, hvað er eiginlega málið með þessa endalausu rigningu, hún hentar mér barasta engan veginn þessa dagana, og ekki nóg með það þá held ég að það sé spáð 22 stiga hita fyrir norðan um helgina! Gæti trúað að séra sóli og sonur verði nokkuð ánægðir með það og fylgist grannt með hitamælinum!
En jæja best að fara að rölta einn hring hérna í vinnunni
bæjó
Smá pćlingar varđandi tískunaSigurlína Stefánsdóttir
Ég er ekki neitt lítið ánægð með þetta framtak hjá skjá einum að vera að sýna gömlu uppáhaldsþættina mína, þ.e. Beverly Hills og Melrose place. Þegar ég var yngri missti maður sko ekki af þætti og fundust allir í þáttunum alveg rosalega hipp og kúl! En vá það var ekki laust við að maður fengi smá sjokk þegar maður gaf sér tíma í gær til að horfa á þetta og fólkið var sko allt annað en hipp og kúl!Hef bara sjaldan hlegið jafn mikið að fáranlegum klæðnaði, buxurnar girtar ég veit ekki hvert, bolirnir alveg hryllilega ljótir og að maður byrji nú ekki að tala um hárið! Ákvað að setja hérna inn smá sýnishorn en verð þó að taka það sérstaklega fram að þessi mynd er tekin þegar lengra er liðið á seríuna og er þetta bara nokkuð gott miðað við hörmungina í gær!
Já þetta sýnir manni sko heldur betur hvað tískan getur leikið fólk grátt. Upp úr þessu sem og við þennan mikla þvottadugnað minn í gær fór ég að að velta fyrir mér hvort maður sé ekki ansi mikill þræll tískunnar! málið var það að ég var að þvo nokkrar af gallabuxunum mínum og skellti einum fimm stykkjum í vélina og eftir að hafa reiknað smá í huganum komst ég að því að allar þessar buxur kosta ansi mikinn pening ....þar sem ég er nú ekki þekkt fyrir mikla leikni í hugarreikningi ákvað ég nú að vera örugg á þessu (já ég hafði semsagt akkúrat ekki neitt að gera!!) og eftir að hafa slegið tölurnar inn á vasareikni komst ég að því að þessar buxur voru rúmlega 70.000 kr. virði! Það er nú hægt að gera ekki neitt lítið fyrir þann pening ....eins og t.d. skella sér í eitt stykki utanlandsferð sem ég er alveg sjúk í þessa dagana eins og má glögglega sjá á síðasta bloggi! Pæliði í því og ekki nóg með heldur eftir ca. tíu ár, allavega ef ég miða við þróunina frá Beverly Hills mun mér örugglega finnast allar þessar buxur hafa verið alveg hryllilega ljótar og skil ekki neitt hvað ég var eiginlega að pæla í að ganga í þessu! Allavega hugsaði ég ansi oft í gær hvernig í ands.... fólkið gat hugsað sér að ganga í þessu! En reyndar miðað við þessa þróun sem hefur verið þ.e.a.s að allt gengur í hringi í þessari blessaðri tísku verður maður væntanlega aftur komin í þessa yndislegu Beverly Hills tísku árið 2016 ....og ég bíð spennt!
En það besta við þetta allt saman er samt að mér finnst allt í lagi að eyða þessum peningum í buxurnar því mér finnst það alveg þess virði ef ég sé ánægð með buxurnar sem ég klárlega er!! Því það er nú ekki neitt grín að finna sér gallabuxur sem maður er ánægður með og sérstaklega ekki þegar ég er annars vegar....
Þetta var semsagt eitt af því sem ég er að velta fyrir mér þessa dagana auk ýmissa annarra pælinga sem ég mun væntanlega ef ég þekki mig rétt deila með ykkur á næstu dögum!
Bæjó Sísí
06.06'06 ...og vöknuđ kl. 6!!Sigurlína Stefánsdóttir
Já þetta er heldur betur merkisdagur í dag, verður varla flottari dagsetning en þetta ....nema kannski á næsta ári þegar það verður 07.07'07 og á árunum þar á eftir þegar það verður 08.08'08 o.s.frv. En allavega talandi um þessa dagsetningu þá fannst mér það vera nokkuð spúkí þegar ég vaknaði svo í þokkabót kl. 6!! Var búin að vera glaðvakandi í einhvern tíma og datt nú ekki annað í hug en að klukkan hlyti nú að vera að nálgast 10 og lít því á símann en nei nei þá var hún rétt rúmlega 6! ....ekki beint mjög svo kristilegur tími til að vakna á og eftir að hafa reynt að klemma aftur augun í þónokkurn tíma, telja kindur og allar aðrar leiðir sem mér duttu í hug gafst ég upp og ákvað að fara að gera eitthvað gáfulegra og það er því ástæðan fyrir því að ég sit hér að blogga kl. hálf sjö og það sko NB á frídegi hjá mér! ![]()
Reyndar á að taka þennan blessaða frídag í þvottadag og veitir sko ekki af! Hef nefnilega vanist þeim þægindum undanfarna mánuði (og ég skammast mín eiginlega fyrir að nefna það) að mín yndislega mamma sá bara eiginlega alveg um þvottinn minn, algjör lúxus!! en nú er engin elsku mamma lengur til staðar og hefur hlaðist upp gjörsamlega heilt þvottafjall eftir langvarandi Akureyrardvöl og almenna þvottaleti og sé ég jafnvel fram á að ná í alveg heilar fjórar vélar í dag eða eitthvað álíka ...já það er sko munur að eiga nóg af fötum ....eða þangað til það bítur mann í rassgatið með endalausum þvottiReyndar er bara eitt smávægilegt vandamál, ég veit ekki alveg hvar þvottahúsið er, en það er bara seinni tíma vandamál! Vona bara að ég fari ekki æða inn í íbúðir hjá nágrönnunum haldandi að það sé þvottahúsið!
Er annars mikið að pæla í utanlandsferðum þessa dagana og það er ekki laust við að það votti fyrir smá afbrýðissemi hjá mér þar sem gjörsamlega allir sem ég þekki eru annað hvort búnir að fara út, í útlöndum eða á leiðinni út ...nema ég!og finnst mér það alveg ömurlegt! Þannig að ég verð bara að láta Sólbaðsstofuna Smart duga mér sem mína strönd í sumar! Væri þó alveg til í smá sumarfrí en nei því miður verð ég eins og allt útlit er fyrir núna að vinna alveg þar til skólinn byrjar og meira að segja rétt rúmlega það, fæ ekki einu sinni eina langa helgi í allt sumar þannig að það verða varla margar norðurferðirnar! En til að bæta mér þetta upp er sko nú þegar búið að plana tvær utanlandsferðir næsta vetur!!
Ætlunin er að skella sér út til Esterar og Óla til Ítalíu í október ....vona bara að það verði ennþá sól og blíða! og svo er stefnan sett á London ferð eftir áramót og heimsækja nýja völlinn Emirates Stadium sem verður væntanlega alveg yndisleg ferð! ....meira að segja aldrei að vita nema manni takist að plata Jónsa með og koma honum í skilning um að það sé miklu gáfulegra að halda með Arsenal heldur en Man. Utd.
En jæja held þetta sé komið gott að sinni
Bestu kveður
Sísí svefnlausa þvottakelling!!
Bara ađeins ađ breyta til....Sigurlína Stefánsdóttir
Þar sem ég er alveg endanlega komin með ógeð á blog.central og hafði ótrúlegt en satt barasta ekkert að gera ákvað ég nú að kíkja aðeins á þetta og leist þetta líka svona vel á! Þannig að ég er búin að vera að tölvunördast í allt kvöld! ....maður er náttúrulega ekki vefstjóri fyrir ekki neitt!
Verst bara að Sísíar nafnið var upptekið þannig að eftir ansa langa umhugsun og erfiða ákvarðanatöku ákvað ég bara að notast við mitt eðlilega nafn og hafa þessa líka rosalega formlegu slóð
Annars hef ég frá ósköp takmörkuðu að segja þar sem ég var nú að blogga í kvöld á gamla blogginu mínu og lét eins og mín er nú venjan móðann mása þar í ansi löngu bloggi! Þannig að ég læt þetta duga í bili sem prufublogg!
Bæjó spæjó!
